Sumac: djúprauð villt ber sem vaxa víða í Miðausturlöndum og við Miðjarðarhaf – eru síðan sólþurrkuð. Sumac stýrir björtum sítruskeimi sem er ómissandi í matseld Miðausturlanda. Eldhús: Þráinn Freyr Vigfússon ásamt Eyþóri Freyr Haraldssyni hafa hannað hrjúfan og fágaðan matseðil með sterkum innblæstri frá seiðandi stemningu Beirút í Líbanon og tælandi áhrifum frá Norður Afriku. Matseðill: óspillt ferskt hráefni úr íslenskri náttúru matreitt undir áhrifum Miðausturlanda. Brögð einkennast af eldgrilluðum réttum, fjarrænum og framandi kryddum.